Menu

Fréttir

22. febrúar 2026

Skipuleggja Skrúfudaginn 2026

 

Vigdís og Ragnar vinna að skipulagningu Skrúfudagsins.

Skrúfudagurinn er árlegur kynningardagur nemenda í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans þar sem gestum gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nemendur og starfsfólk og prófa ýmislegt spennandi. Skrúfudagurinn í ár verður haldinn laugardaginn 21. mars og er undirbúningur í fullum gangi þessa dagana.

Hermarnir í uppáhaldi

Ragnar Bjarni, nemandi í Skipstjórnarskólanum og talsmaður Skrúfudagsins, og Vigdís Jóna Árnadóttir, meðlimur skrúfunefndar útskriftarnemenda Véltækniskólans, eru meðal þeirra sem skipuleggja dagskrána í ár.

Ragnar, sem er uppalinn í Mosfellsbæ, hefur alla tíð haft mikinn áhuga á skipstjórn og kemur úr fjölskyldu með sterkar rætur í greinina.  Vigdís Jóna er frá Selfossi og vissi snemma að hana langaði ekki í hefðbundið bóknám. Hún hóf grunnnám í vélvirkjun á Selfossi og stundar nú vélstjórnarnám í Tækniskólanum. Bæði segjast þau spennt fyrir Skrúfudeginum og segja gesti mega búast við frábærri skemmtun.

„Við stýrimennirnir höfum alltaf verið með hermi úti í rafmagnshúsi og lítinn hermi hér á annarri hæð auk netaviðgerða sem gestum er velkomið að prófa,“ segir Ragnar.

Vigdís bætir við að Véltækniskólinn verði einnig með vélhermi á fyrstu hæð sem hefur ávallt vakið mikla lukku gesta.

„Við ætlum líka að bjóða gestum upp í turn, þaðan sem hægt er að njóta útsýnisins.“

Fjöldi fyrirtækja og stofnana í sjávarútvegi tekur þátt í Skrúfudeginum. Meðal þeirra er Landhelgisgæslan, sem fagnar 100 ára afmæli í ár og býður upp á spennandi dagskrá.

Aðspurður hvers vegna Skrúfudagurinn sé mikilvægur hluti af skólasamfélaginu svarar Ragnar: „Þetta er frábær kynning á náminu sem kennt er í skólanum og auðvitað skemmtilegt tilefni fyrir fyrrum nemendur að kíkja í heimsókn í gamla skólann sinn.“

Vigdís og Ragnar segja öflugt samfélag í kringum skip- og vélstjórn á Íslandi og telja þau Skrúfudaginn mikilvægan vettvang til þess að styrkja tengslin við aðra í faginu.

„Ég get auðvitað bara talað um stýrimannanemendur, en þetta eflir klárlega tengslanetið sem skiptir miklu máli. Svo er gaman að segja frá því að við ljúkum yfirleitt Skrúfudeginum á árshátíð vélstjóra og stýrimanna um kvöldið.“

Það eru öll hjartanlega velkomin í heimsókn í Tækniskólann á Háteigsvegi á Skrúfudaginn og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað skemmtilegt að skoða.

„Boðið verður upp á gagnvirkar stöðvar og hægt að prófa bæði vélstjórnar- og skipstjórnarherma. Björgunarsveitin kom til dæmis með bát í fyrra sem vakti mikla lukku. Gestum er svo boðið upp á kökur, kaffi og aðrar kræsingar,“ útskýrir Vigdís og segja þau Ragnar að Skrúfudagurinn sé skemmtun fyrir alla, meira að segja þá sem hafa aldrei stigið upp í bát áður.