Skólafundur 18. febrúar
Skólafundur

Samkvæmt lögum um framhaldsskóla skal halda skólafund a.m.k. einu sinni á skólaári en skólafundir eru mikilvægur lýðræðislegur vettvangur fyrir nemendur skólans til að koma sínum málefnum á framfæri.
Skólafundur verður haldinn í Tækniskólanum miðvikudaginn 18. febrúar kl. 10:25–12:05. Þá er kennsla felld niður og nemendur og starfsfólk ræða um ýmis málefni er varða skólann og nemendur.
Athugið að mætingaskylda á skólafund gildir um öll þau sem eru með tíma í stundatöflu kl. 10:25–12:05 þennan dag. Þá hvetjum við aðra nemendur til þess að mæta á skólafund í matsölum skólans á sama tíma.
Gert er ráð fyrir að kennarar haldi fundinn með sínum nemendahópi en einnig er lögð áhersla á að nemendur taki að sér hlutverk fundarstjóra, ritara og tímavarðar í hverri kennslustofu.
Umræðuefni
Umræðuefni á skólafundi koma frá samráðsvettvangi nemenda, kennara og stjórnenda í skólaráði. Á fundinum er nemendum skipt upp í 5–7 manna hópa og eru fjögur málefni tekin fyrir í hverjum hóp.
Spurningarnar eru:
- Hvernig getur skólinn undirbúið nemendur betur fyrir lífið eftir framhaldsskóla ?
- Hvernig getur skólinn komið betur til móts við þarfir hvers og eins nemanda?
- Hvað er hægt að gera til þess að nemendum líði betur í skólanum?
- Hvað vilt þú sjá gert betur í félagslífi skólans?
Upplýsingar fyrir kennara
Verkefnablöð og skriffæri, fyrir hópavinnu skólafundarins, má nálgast á eftirfarandi stöðum:
Skólavörðuholt
Móttaka á 1. hæð
Háteigsvegur
Bókasafn á 4. hæð
Hafnarfjörður
Bókasafn á 2. hæð
Skeljanes
Kaffistofa kennara
Hér er hlekkur á kynningarmyndband fyrir skólafund Tækniskólans 2026.