Skólagjöld lækkuð í stafrænni hönnun og vefþróun
Tækniskólinn hefur ákveðið að lækka skólagjöld umtalsvert í námi í stafrænni hönnun og vefþróun. Með breytingunni verða skólagjöld einungis 30.000 kr. á önn, líkt og á flestar aðrar námsbrautir skólans.
Hingað til hafa skólagjöld verið 300.000 kr. á önn í stafrænni hönnun og 250.000 kr. á önn í vefþróun. Breytingin tekur gildi frá og með haustönn 2026.
Ákvörðunin er tekin í ljósi breyttra aðstæðna í námi í skapandi greinum á efri hæfniþrepum á Íslandi en skemmst er að minnast niðurfellingar skólagjalda hjá Listaháskóla Íslands.
Með þessari aðgerð vill Tækniskólinn tryggja nemendum betra aðgengi að námi sem hefur ríka þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf.
Mikilvægt fyrir skapandi greinar og tækniiðnaðinn
Stafræn hönnun gegnir mikilvægu hlutverki í uppbyggingu hugverkaiðnaðar á Íslandi. Útskrifaðir nemendur starfa víða innan skapandi greina, til dæmis við tölvuleikjagerð, kvikmyndagerð og þróun stafræns efnis fyrir innlendan og erlendan markað.
Nám í vefþróun við Tækniskólann hefur einnig ákveðna sérstöðu hér á landi þar sem það sameinar vefhönnun, viðmótshönnun og vefforritun í einu samræmdu námi. Námið einkennist af fámennum hópum, öflugu námsumhverfi og nánu samstarfi við atvinnulífið.
Með lækkun skólagjalda er markmiðið að efla aðgengi að náminu, fjölga umsóknum og styrkja stöðu þess til framtíðar, með hagsmuni nemenda og íslensks atvinnulífs að leiðarljósi.