Tækniskólinn lokaður til hádegis
Kæru nemendur og aðstandendur (English below)
Í ljósi rauðrar veðurviðvörunar sem tók gildi núna klukkan 16:00 var kennsla felld niður í dag miðvikudag frá og með 14:25 (þ.m.t. kvöldskóli og klúbbakvöld).
Í fyrramálið tekur önnur rauð viðvörun gildi klukkan 8:00 og stendur eins og er til klukkan 12:00. Við fellum því niður kennslu til hádegis á morgun fimmtudag. Við munum svo endurmeta stöðuna í fyrramálið og senda ykkur í framhaldinu póst varðandi fyrirkomulag kennslu eftir hádegi.
Þegar ég sendi ykkur tölvupóst eins og þennan þá sendi ég hann í gegnum innu og um leið SMS. Það er hins vegar tregða í kerfinu þegar margir eru að senda slíkar tilkynningar til margra í einu og látið ykkur því ekki bregða ef SMS-ið kemur töluvert á eftir tölvupósti. Það er því mikilvægt að þið treystið ekki bara á SMS skilaboð heldur fylgist líka vel með tölvupósti.
Farið varlega!
Kær kveðja,
Hildur
Dear students and guardians
In light of the red weather warning that came into effect now at 4:00 pm, classes were canceled today Wednesday from 2:25 pm (including evening school and ,,klúbbakvöld“) and the school is now closed.
Tomorrow morning, another red weather warning comes into effect at 8:00 and currently lasts until 12:00. Classes are therefore canceled until noon (lunchtime) tomorrow Thursday and the school will be closed in the meantime. Tomorrow morning we will reassess the situation and send you a message through e-mail and SMS regarding classes in the afternoon.
When I send you an e-mail like this, I send it via inna and at the same time an SMS message. However, the system can be slow when many are attempting to send messages to a big group of people at once, so don’t be alarmed if the SMS arrives quite a bit later than the e-mail. It is therefore important that you not only rely on SMS but also monitor your e-mail.
Stay safe!
Kind regards,
Hildur