Skráning hafin í nýnemaferð NST

Nýnemaferðir NST verða farnar dagana 26. og 27. ágúst. Þar gefst nýnemum gott tækifæri til að kynnast samnemendum sínum betur og eiga skemmtilegan dag saman í upphafi skólaársins.
Farið verður með rútu á Stokkseyri þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Meðal annars verður farið í kajaksiglingu og ýmsa leiki, boðið verður upp á grillmat, snarl og aðra skemmtun. Markmið ferðarinnar er að efla samheldni nemenda og skapa skemmtilegar minningar.
Ferðirnar verða sem hér segir:
26. ágúst: Nýnemar í Hafnarfirði og á Háteigsvegi
27. ágúst: Nýnemar á Skólavörðuholti
Þátttökugjald er 5.500 kr. Innifalið í verðinu er rútuferð til og frá Stokkseyri, kajaksigling, matur, snarl og önnur dagskrá.
Nýnemar eru eindregið hvattir til þess að skrá sig og taka þátt í þessum skemmtilega degi.
Skráning fer fram á vef Nemendafélags Tækniskólans, NST.
Athugið að skráningu í nýnemaferðina lýkur kl 22:00 sunnudaginn 23. ágúst.