Skrúfudagur í rjómablíðu
Skrúfudagurinn 2025 var haldinn með pompi og prakt síðastliðinn laugardag. Dagurinn var vel heppnaður í alla staði og ekki spillti veðrið sem lék við gesti og gangandi. Frú Halla Tómasdóttir og maður hennar Björn Skúlason komu í heimsókn og fengu leiðsögn um skólann í föruneyti nemenda og starfsfólks.
Dagskrá hófst með setningarávarpi forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, sem var að koma í heimsókn í Tækniskólann í fyrsta skipti. Þá voru heldri nemendur frá Stýrimannaskólanum heiðraðir sérstaklega. Um var að ræða 60 ára útskriftarárgang stýrimanna úr farmannadeild. Víglundur Laxdal, skólastjóri Véltækniskólans og Skipstjórnarskólans, afhenti framkvæmdastjóra KAPP viðurkenningu frá Tækniskólanum fyrir einstaka gjöf til skólans. En fyrirtækið gaf CO2 kælikerfi sem verður notað til kennslu í kælitækni. Það var svo skólahljómsveitin Falskir og óundirbúnir sem sungu nokkur lög við setningarathöfnina.
Tækniskólinn sendir samstarfsaðilum og þátttakendum í Skrúfudeginum 2025 bestu þakkir fyrir samstarfið. Gestum þökkum við kærlega fyrir komuna.