fbpx
Menu

Fréttir

23. mars 2023

Skrúfudagurinn

StýrimannaskóliSkrúfudagurinn er árlegur kynningardagur nemenda í vélstjórn og skipstjórn við Tækniskólann og verður hann haldinn hátíðlegur laugardaginn 25. mars milli kl. 12:00 og 15:00 í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg.

Gestum og gangandi gefst kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nemendur og starfsfólk og prófa hina ýmsu hluti. Dagskráin er virkilega fjölbreytt og glæsileg.

Einnig verður mögulegt að spjalla við námsráðgjafa um annað námsframboð í Tækniskólanum og innritun.

Öll velkomin!

 

Dagskrá

Setning

  • Víglundur Laxdal Skólastjóri býður gesti velkomna
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti setur hátíðina
  • Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson leikur nokkur lög
  • Fulltrúar Bláma og Tækniskólans undirrita viljayfirlýsingu

Útisvæði

  • Ýmsar kynningar fyrir framan skólann
  • Slysavarnafélagið Landsbjörg með bátasýningu

Aðalbygging – 1. hæð

  • Móttaka gesta
  • Vélahermar
  • Skoðaðu þig um í fullkomnasta vélahermi landsins

Aðalbygging – 2. hæð

  • Netaverkstæði
  • Siglingahermar
  • Sögusýning um Halaveðrið

Aðalbygging – 3. hæð

  • Fyrirtækjakynningar þar sem mörg af glæsilegustu fyrirtækjum og stofnunum landsins í sjávarútvegi verða á staðnum
  • Marel
  • Landhelgisgæslan
  • Alda
  • Slysavarnaskólinn Sæbjörg

Aðalbygging – 4. hæð

  • Gröfu- og ökuhermar
  • Gamlar útskriftarmyndir og lokaverkefni til sýnis á bókasafni

Aðalbygging – Turn

  • Siglingatæki verða til sýnis í turninum
  • Gestir geta farið út á svalir en þar er frábært útsýni yfir Reykjavík

Rafmagnshús

  • Siglingahermir í gangi
  • Gestir geta prófað að taka í stýrið

Vélahús

  • Deltavélin gangsett á hálftíma fresti
  • Glóðarhausavél gangsett á heila tímanum
  • Aðrar vélar ræstar reglulega
  • Suðuróbót og suðuhermir

Veitingasala

  • Veitingasala verður í mötuneyti á 4. hæð
  • Veitingasalan er styrkt af VM félagi vélstjóra og málmtæknimanna
  • Ágóði af sölunni rennur til útskriftarhóps Véltækniskólans
  • Fríar veitingar fyrir börn undir sex ára