Menu

Fréttir

14. mars 2024

Skrúfudagurinn

Skrúfu­dag­urinn er árlegur kynn­ing­ar­dagur nem­enda í Vél­tækni- og Skip­stjórn­ar­skóla Tækni­skólans. Hann verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 16. mars kl. 13:00–16:00 í húsnæði Tækni­skólans við Háteigsveg.

Gestum og gangandi gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nemendur og starfsfólk og prófa ýmislegt spennandi.

Boðið verður upp á fyrirtækjakynningar þar sem mörg af glæsilegustu fyrirtækjum og stofnunum landsins verða á staðnum. Einnig verða fulltrúar frá nokkrum skólum með kynningar og námsráðgjafi frá Tækniskólanum getur svarað fyrirspurnum.

Þá geta gestir kíkt í turninn, nælt sér í Skrúfudagspeysu, gætt sér á veitingum og margt fleira.

Hér má skoða dagskránna í heild sinni.

Verið hjartanlega velkomin!