fbpx
Menu

Fréttir

22. mars 2022

Skrúfudagurinn

Skrúfudagurinn er árlegur kynningardagur nemenda í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans og verður hann haldinn hátíðlegur laugardaginn 26. mars milli kl. 13:00 og 16:00 í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg.

Gestum og gangandi gefst kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nemendur og starfsfólk og prófa hina ýmsu hluti t.d. að sigla í fullkomnasta siglingahermi landsins. Dagskráin er virkilega fjölbreytt og glæsileg.

Þið eruð öll hjartanlega velkomin.

 

Dagskrá

Setning

  • Víglundur Laxdal, skólastjóri, og Júlíus Bjarnason, form. Skólafélags Véltækniskólans, opna hátíðina kl. 13:00.
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp.
  • Tónlistarmaðurinn KK leikur nokkur lög.

Útisvæði

  • Ýmsar kynningar fyrir framan skólann.
  • Slökkviliðið, Landsbjörg, Slysavarnaskólinn og Landhelgisgæslan eru meðal þeirra sem taka þátt.

Fyrirtækjakynningar

  • Fyrirtækjakynningar verða víðs vegar í byggingunni. Mörg af glæsilegustu fyrirtækjum og stofnunum landsins í sjávarútvegi verða á staðnum.

Aðalbygging – 1. hæð

  • Móttaka gesta.
  • Vélahermar opnir. Skoðaðu þig um í fullkomnasta vélahermi landsins!

Aðalbygging – 2. hæð

  • Veiðarfæri, vírar, tóg og fleira áhugavert til sýnis.
  • Hægt að læra að splæsa saman og gera pelastikk.
  • Sögusýning um Halaveðrið.

Aðalbygging – bókasafn

Aðalbygging – Turn

  • Siglingatæki verða til sýnis í turninum.
  • Ef veður leyfir er hægt að fara út á svalir en þar er frábært útsýni yfir Reykjavík.

Rafmagnshús

  • Siglingahermir í gangi. Gestir geta prófað að taka í stýrið.
  • Nemendur að störfum.

Vélahús

  • Delta vélin gangsett á hálftíma fresti.
  • Glóðarhausavél gangsett á heila tímanum.
  • Aðrar vélar ræstar reglulega.
  • Nemendur að störfum.

Veitingasala

  • Boðið verður upp á veitingasölu í mötuneyti á 4. hæð. Þetta er styrktarsala fyrir útskriftarhóp Véltækniskólans. Fríar veitingar fyrir börn undir sex ára.

 

Við hvetjum sem flesta til að mæta á þennan skemmtilega viðburð og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá!

#skrufan22