Menu

Fréttir

27. apríl 2026

Skuggakosningar í Tækniskólanum

Kosningaréttur er tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið

Niðurstöður skuggakosninga verða birtar að loknum kjördegi sveitarstjórnarkosninga, 16. maí.

Skuggakosningar í Tækniskólanum fara fram miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi. Nemendur geta greitt atkvæði í matsölum skólans á Skólavörðuholti og í Hafnarfirði, auk þess sem kjörstaður verður í Hátíðarsalnum á Háteigsvegi.

Kosningarnar hefjast kl. 12:00 og standa yfir til kl. 16:00 sama dag.

Skuggakosningar, eða svokallaðar skólakosningar, eru settar upp með sama hætti og almennar kosningar. Tilgangur skuggakosninga er að þjálfa nemendur sem ekki hafa náð kosningaaldri í að kjósa og undirbúa þá betur sem eru að kjósa í fyrsta sinn.
Jafnframt fá nemendur reynslu af því að skipuleggja og framkvæma hið lýðræðislega ferli kosninga.

Skuggakosningar eru liður í því að efla lýðræðisvitund ungs fólks. Í þeim kjósa framhaldsskólanemar sína fulltrúa í sveitarstjórn og gefa þannig vísbendingu um vilja ungs fólks um land allt. Niðurstöður verða birtar að loknum kjördegi sveitarstjórnarkosninga, 16. maí.

Hvernig fer þetta fram?

  • Nemandi framvísar skilríkjum á kjörstað og fær kjörseðil.
  • Kosningin er leynileg og fer fram í einrúmi.
  • Nemendur merki X fyrir framan það sem þau vilja kjósa. Mikilvægt er að gera engar aðrar merkingar á kjörseðilinn því þá telst atkvæðið ógilt.
  • Að lokum er kjörseðillinn brotinn saman þannig að letrið snúi inn og nemandinn setur hann í kjörkassann.

Nánari upplýsingar um skuggakosningar má finna á vefsíðunni Ég kýs.