fbpx
Menu

Fréttir

17. október 2024

Slaufan

Slaufan fyrsta ball skólaársins fer fram miðvikudaginn 23. október á AUTO, Lækjargötu 2a.

Við opnum hurðina kl. 22:00 en kl. 22:45 hættum við að hleypa nemendum inn á ballið. Ballinu lýkur kl. 01:00 og við hvetjum forsjáraðila til að sækja börnin sín.

Á ballinu spila Birnir, Clubdub, Saint Pete, Tónhylur Akademía og DJ Gugga.

 

Miðasala 

Miðaverð er 4.990 kr. fyrir nemendur Tækniskólans. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær

Smelltu hér fyrir miðasölu!

 

Viltu bjóða gesti úr öðrum skóla?

Tækniskólanemendur geta boðið einum gesti með sér á ballið. Gesturinn er á þinni ábyrgð og þarf að skrá kennitöluna þína við miðakaup. Miðinn kostar 5.490 kr.

Smelltu hér fyrir miðsölu, ef þú ert ekki nemandi í Tækniskólanum!

 

Öryggisgæsla

Ásamt starfs­fólki skólans sinnir BS Öryggi öryggisgæslu á ballinu. Þar að auki er sjúkra­her­bergi á staðnum sem er mannað tveimur hjúkrunarfræðinemum. Einnig er vert að nefna að það er leitað á öllum sem koma á ballið. Gæslan leyfir nemendum ekki að koma inn með t.d. rafrettur, nikótínpúða, ilmvötn, snyrtivörur eða tyggjó. Allur óheimill varn­ingur verður gerður upp­tækur og honum fargað.

 

Uppvís að drykkju á balli

NST býður öllum sem mæta á böll að blása í áfengismæli. Allsgáðir og heppnir nemendur Tækniskólans verða síðar dregnir úr edrúpottinum og geta unnið verðlaun.

Það má ekki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á viðburðum skólans. Ef nemandi er grunaður um drykkju á balli er honum boðið að blása í áfengismæli. Ef ölvun mælist eða nemandinn neitar að blása er hringt í forráðamenn sé hann yngri en 18 ára og þeim gert að sækja hann en 18 ára eða eldri nemendum er vísað af balli.