07. apríl 2026
Söngkeppni framhaldsskólanna 2026

Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram laugardaginn 11. apríl kl 20:45 í Háskólabíó.
Júlía Rós Kristinsdóttir nemandi á Hönnunar- og nýsköpunarbraut syngur fyrir hönd skólans lagið „Elska þig enn.“
Dómarar keppninnar í ár eru Bríet, Helgi Björns og Þormóður Eiríksson. Ágúst Þór Brynjarsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir eru kynnar keppninnar en ásamt keppendum munu Skandall, sigurvegarar keppninnar í fyrra, Páll Óskar og Aron Can koma fram.
Dómarar ráða ekki einir úrslitum því símakosning hefur vægi á móti atkvæðum dómnefndar.
Símanúmer keppanda Tækniskólans er 900-9102.
Miðasala er hafin og inn á tix.is og verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Áfram Júlía Rós!