Starf vefstjóra
Staða vefstjóra Tækniskólans er laus til umsóknar. Við leitum að einstaklingi sem hefur næmt auga fyrir stafrænni notendaupplifun, framsetningu ljósmynda og texta, auk framúrskarandi hæfni í íslensku. Viðkomandi þarf að sýna mikið frumkvæði í starfi og leiða fjölbreytt verkefni innan skólans og sinna stefnumótandi verkefnum á sviði vefþróunar. Vefstjóri heyrir undir samskipti og félagslíf og vinnur náið með stjórnendum Tækniskólans. Gildi Tækniskólans eru alúð, framsækni og fjölbreytileiki.
Um er að ræða tímabunda ráðningu, með möguleika á framtíðarstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ritstjórn á vefsíðum Tækniskólans í samræmi við vefstefnu
- Textaskrif og yfirlestur s.s. fréttir og lendingarsíður
- SEO greiningar m.t.t. leitarvélabestunar
- Fylgja eftir og móta vefstefnu í samráði við stjórnendur
- Tengiliður við hýsingaraðila
-
Þátttaka í öðrum verkefnum samskipta og félagslífs
Menntunar- og hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku
- Reynsla af vefstjórn og SEO greiningum
- Reynsla af WordPress og Webflow mikill kostur
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Metnaður til að fylgjast með og innleiða nýjustu strauma í starfrænu markaðsumhverfi
-
Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Sveinn Jóhannesson, deildarstjóri samskipta og félagslífs í síma 665 1155 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]