19. apríl 2024
Stjórn NST
NST óskar eftir framboðum
Stjórn NST samanstendur af níu nemendum skólans. Kosið er sérstaklega í embætti forseta, varaforseta og gjaldkera.
Þar að auki geta nemendur boðið sig fram í embætti meðstjórnenda en fimm meðstjórnendur eru í stjórn. Í september leitar stjórn eftir níunda aðilanum sem er nýnemafulltrúi.
Hér til hliðar má sjá myndir sem sýna hlutverk hvers embættis.
Við vekjum einnig athygli á því að óskað verður eftir framboðum í nefndir og stjórn félaga af nýrri stjórn þegar hún tekur við.
Framboðum skal skila í þetta skjal og þar má skoða verkefni stjórnar og kosningareglur.
Lokað verður fyrir framboð sunnudaginn 21. apríl kl. 16:15. Kosningarnar fara svo fram í Innu dagana 22.–24. apríl næstkomandi.