09. apríl 2025
Stöðupróf í litháísku og persnesku

Stöðupróf í litháísku og persnesku verða haldin í Menntaskólanum við Sund föstudaginn 25. apríl kl. 14:30.
Próftökugjald er 15.000 kr. og er óendurkræft. Nemendur geta fengið allt að 20 einingar metnar í tungumálinu.
Próftakar þurfa að millifæra prófgjaldið í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 23. apríl og mæta með kvittun fyrir greiðslu og skilríki í prófið.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Menntaskólans við Sund.