fbpx
Menu

Fréttir

10. nóvember 2018

Stöðupróf í norsku og sænsku

Stöðupróf í norsku og sænsku

Stöðupróf í norsku/sænsku verða haldin laugardaginn 8. des. kl. 10:00. Próftakan kostar kr. 12.000-.

Próftakar þurfa að millifæra prófgjaldið inn á 0323-26-106, kt. 460269-3509, fyrir kl. 12:00 þann 7. desember og mæta með kvittun fyrir millifærslunni í prófið, ásamt skilríkjum. Þegar millifærsla á sér stað, þá vinsamlega tilgreinið í skýringu kennitölu próftaka.

Skráning fer fram í gegnum vefsíðu Menntaskólans í Hamrahlíð.

Óski próftaki eftir að þreyta próf í öðrum skóla en MH þá þarf viðkomandi að fá leyfi fyrir próftöku í eigin skóla.