14. október 2024
Stöðupróf í spænsku

Stöðupróf verður haldið í spænsku í Menntaskólanum við Sund föstudaginn 25. október kl. 13:00–15:00.
Próftakar þurfa að millifæra prófgjaldið í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 22. október. Mæta skal með kvittun fyrir greiðslu og skilríki í prófið.
Sjá má allar nánari upplýsingar á vefsíðu Menntaskólans við sund.