Menu

Fréttir

14. febrúar 2025

Stúdentsbrautir Tækniskólans

Þegar þið hugsið um Tækniskólann, dettur ykkur kannski ekki fyrst í hug, stúdentsbrautir?

En í Tækniskólanum eru 4 stúdentsbrautir sem okkur langar til þess að vekja sérstaka athygli á.

 

Hönnunar- og nýsköpunarbraut

Áhersla á skapandi nám þar sem nemendur vinna með sjónræna þætti eins og teikningu, litafræði og formhönnun. Nemendur vinna verkefni með nýsköpun, lausnaleit og sjálfbærni að leiðarljósi.

Hönnunar- og nýsköpunarbraut er fyrir nemendur sem hafa áhuga á hönnun, teikningu og skapandi umhverfi. Brautin er FRÁBÆR leið fyrir þau sem stefna á háskólanám í skapandi greinum.

 

K2 tækni- og vísindaleið

Áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og fjölbreytta verkefnavinnu. Krefjandi nám þar sem nemendur vinna með gagnrýna hugsun og lausnaleit. Brautin er skipulögð sem bekkjakerfi með heimastofur.

K2 er FÁGÆT braut fyrir nemendur sem hafa áhuga á einstakri áskorun í námi og nútímalegum kennsluháttum. Námið er mjög góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í tækni- og vísindagreinum.

 

Tölvubraut og tölvubraut hönnun

Báðar brautirnar eru með áherslu á forritun og tölvutækni.

Á tölvubraut er sérstök áhersla á forritun, kerfisstjórnun og vefsíðugerð en einnig er val um vélmennaforritun og tölvuleikjagerð.

Á tölvubraut hönnun er einnig áhersla á forritun og vefsíðugerð en einnig á stafræna hönnun og myndvinnslu. Auk þess er val um tölvuleikjagerð, grafíska miðlun, ljósmyndun o.fl.

Tölvubrautir Tækniskólans eru FRAMÚRSKARANDI kostur fyrir nemendur sem vilja læra undirstöðuatriðin í tölvutækni og forritun. Námið er besti undirbúningurinn til háskólanáms á sviði tölvunarfræði.

 

Stúdentsbrautir sem eru góður undirbúningur fyrir ólíkar námsleiðir á háskólastigi.

Aukinheldur má minna á þá staðreynd að mögulegt er að ljúka stúdentsprófi samhliða öllum iðnnámsbrautum Tækniskólans.

Endilega kannið málið!