29. janúar 2026
Styrkir til starfsþjálfunar erlendis
Nemendur, 18 ára og eldri, í starfsnámi geta sótt um styrk hjá Erasmus+ til að fara til Evrópulanda í námsferð eða starfsþjálfun sem tengist þeirra starfsgrein.
Flest Evrópulönd standa til boða og nemendur velja sjálf þann vinnustað sem hentar þeirra fagi og áhugasviði best. Erasmus+ -styrkurinn dugar fyrir stórum hluta ferða-, fæðis- og gistikostnaðar.
Nemendum Tækniskólans sem hafa áhuga á að kynna sér Erasmus+ -styrkinn frekar er bent á að hafa samband við Ingibjörgu Rögnvaldsdóttur, deildarstjóra upplýsinga- og alþjóðadeildar, í netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Erasmus+.