Sumarball

Fimmtudaginn 11. apríl verður Sumarball FÁ – BORGÓ – FMOS – TÆKNÓ – FB haldið í PORT Reykjavík – eða Kolaportinu Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.
Húsið opnar kl. 22:00 en ekki er hleypt inn á ballið eftir 23:00. Ballinu lýkur kl. 01:00.
Fram koma DJ Gugga, Tónhylur, Ezekiel, Young Nigo, Aron Can & og Daniil.
Miðasala
Miðasala fyrir nemendur Tækniskólans er hafin og verða armbönd afhent í næstu viku.
Mánudaginn 8. apríl hefst miðasala fyrir gesti úr öðrum framhaldsskólum en Tækniskólanemendur geta boðið einum gesti með sér. Gestur getur ekki keypt miða nema með kennitölu þess nemanda sem býður honum með. Kennitöluna skráir gestur við miðakaup. Hlekkur fyrir miðasölu gesta birtist inn í fréttinni næstkomandi mánudag.
Miðaverð er 4.500 kr. fyrir nemendur FÁ, Tækniskólans, FB, FMos og Borgarholtsskóla en 5.500 kr. fyrir aðra. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Edrúpottur
NST mælir með því að þú upplifir lífið edrú. Því fylgja engir gallar, bara kostir. Það má heldur ekki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á viðburðum skólans. Slepptu öllu ölæði og taktu meðvitaða ákvörðun um að vera án vímuefna. Snillingar sem blása í áfengismæli komast í edrúpottinn og geta unnið peningaverðlaun. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfilegt að koma inn með tóbak, nikótínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varningur verður gerður upptækur og honum fargað.
Ölvun ógildir miðann!
Ofbeldi ólíðandi
Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða særandi athugasemdum um útlit fólks, hómófóbíu eða kynþáttafordómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógnvekjandi eða fjandsamlegt umhverfi verður ekki liðin.
Sjáumst á ballinu!