fbpx
Menu

Fréttir

13. október 2021

Sveinspróf

VélstjórnSveinspróf í eftirtöldum iðngreinum sem kenndar eru í Tækniskólanum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka næst:

  • Í byggingagreinum í janúar 2022. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021.
  • Í vélvirkjun í febrúar til mars 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.
  • Í hársnyrtiiðn í febrúar til mars 2022. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021.

Nánari dagsetningar verða birtar á vef IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2021.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.