T-ið í TÆKNÓ er komið út
Glænýtt skólablað sem ber heitið T-ið í TÆKNÓ og var unnið af nemendum í Upplýsingatækniskólanum er komið út.
Í haust fór af stað áfanginn Hönnun blaða og tímarita í Upplýsingatækniskólanum og voru 15 nemendur úr ýmsum deildum skólans skráðir. Nemendahópurinn náði sérlega vel saman og að þeirra sögn gekk vinnan við blaðið eins og vel smurð vél.
Hugmyndasamkeppni var haldin um nafn á blaðið og T-ið í TÆKNÓ bar sigur úr býtum:
Þetta nafn hefur í raun tvær merkingar. Fyrsta merkingin er fyrir bókstafinn T í orðinu Tæknó. Hin merkingin er fyrir T eins og enska orðið „tea“ sem þýðir drama/slúður. Okkur fannst það frumlegt því það hefur fleiri en eina meiningu. Það stendur fyrir drama og slúður sem er að gerast í Tæknó. Það fer bara eftir lesandanum hvernig hann lítur á nafnið.
Endilega kíkið á afraksturinn og er það von þeirra sem stóðu að blaðinu að lesendur hafi ánægju af lestrinum.