Atvinnulífið & Tæknó
Tækniskóladagurinn 2024

Tækniskóladagurinn verður haldinn miðvikudaginn 25. september næstkomandi. Markmið viðburðarins er að efla tengslin við atvinnulífið og í ár verður lögð áhersla á að fjölbreytileiki og alúð einkenni daginn.
Hefðbundin stundatafla gildir ekki þennan dag heldur skrá nemendur sig á viðburði.
Dagskrá
Á Tækniskóladeginum mun nemendum gefast kostur á að sækja bæði kynningar og fyrirlestra í húsnæði Tækniskólans en einnig heimsækja allmörg fyrirtæki. Dæmi um fyrirtæki sem leggja okkur lið með fræðslu og kynningum þennan dag eru Fagefni, Alfreð, Eðalklæði, Landsbjörg, Verkfærasalan, Rönning, Sjóvá, CCP, Isavia Ans, Rafal, Fagefni og Rio Tinto.
Hér má sjá DAGSKRÁ Tækniskóladagsins.
Skráning – Uppfært!
Lokað hefur verið fyrir skráningar á Tækniskóladaginn.
Þeir nemendur sem ekki náðu að skrá sig gegnum formið geta mætt á eftirfarandi viðburði og skráð sig á staðnum.
Skólavörðuholt
Kl. 13:00–14:00
Rönning / Nýjungar og framtíðarsýn / Stofa 303
Kl. 13:00–15:00
42 Framtíðarstofa / Kynning
Kl. 14:00–15:00
Fagefni / Inndælingalausnir og burðarþolsstyrkingar / Stofa 202
Kl. 14:00–15:00
Dynjandi / Öryggismál á vinnustöðum / Stofa 413
Háteigsvegur
Kl. 9:00–10:00
Gervigreind – áskoranir og tækifæri / Hátíðarsalur
Kl. 11:00–12:00
Alda / Nýsköpun og stafrænar lausnir – hugbúnaðarapp fyrir fiskiskip / Stofa 201
Kl. 13:00–14:00
Að líða vel í vinnunni / Stofa 201
Hafnarfjörður
Kl. 13:00–14:00
Erasmus+ Ný tækifæri í námi og starfi / Bókasafn
Kl. 13:00–14:00
Vatn og veitur / Snjóbræðslukistur og varmaskiptar / Stofa 306
Kl. 13:30–14:30
Landsbjörg / Björgun og leit / Matsalur