Takk fyrir Tækniskóladaginn
Tækniskóladagurinn var haldinn í þriðja sinn síðastliðinn miðvikudag, þar sem nemendur og starfsfólk sóttu ýmist viðburði í skólanum eða heimsóttu fyrirtæki í atvinnulífinu. Yfir 50 viðburðir voru á dagskrá og hafa aldrei jafn margir nemendur tekið þátt
BESTU þakkir til allra sem lögðu okkur lið á þessum frábæra degi. Það var gaman að sjá hvernig tekið var á móti okkar fólki af ALÚÐ og fagmennsku
Það er einmitt fyrir framlag fyrirtækja og fagfólks sem okkur í Tækniskólanum tekst að gera þennan viðburð að raunveruleika. Við teljum daginn skipta sköpum fyrir nemendur og starfsfólk skólans, þar sem hann styrkir mikilvægar tengingar atvinnulífs og skóla. Slíkt samstarf er ómetanlegur þáttur í námi og þroska nemenda okkar og markmið Tækniskóladagsins er alltént að efla þessi tengsl
Skoðaðu fleiri myndir frá Tækniskóladeginum með því að smella á myndina.
Sérstakar þakkir fá eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir fyrir þátttöku í Tækniskóladeginum 2025:
Alfreð
Áltak
Borgarleikhúsið
Brim
Eimskip
Eva Innsýn
Faxaflóahafnir
Hafransóknarstofnun
Héðinn
Heildsalan Þórborg
Hårklinikken
Hönnunarsafn Íslands
Icelandair
Isavia
Ísól
Jökulá
Landhelgisgæslan
Landsvirkjun
Ljósleiðarinn
Nýr Landsspítali
Ríkisútvarpið (RÚV)
Rio Tinto Alcan
Saga Sig
Samfélagslögreglan
S. Guðjónsson
Veitur
Verkfærasalan