Menu

Fréttir

18. september 2025

Tækni­skóla­dag­urinn 2025

Tækniskóladagurinn 2025

Tækniskóladagurinn verður haldinn miðvikudaginn 24. september næstkomandi. Markmið dagsins er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og skapa tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum sem tengjast þeim fjölmörgu fagsviðum sem kennd eru við Tækniskólann.

Hefðbundin stundatafla gildir ekki þennan dag heldur skrá nemendur sig á viðburði. Miðað er við að nemendur skrái sig á tvo viðburði og þurfa þeir að koma sér sjálfir á viðkomandi staði.

 

Dagskrá

Á Tækniskóladeginum mun nemendum gefast kostur á að sækja bæði kynningar og fyrirlestra í húsnæði Tækniskólans, auk þess að heimsækja fjölda fyrirtækja. Fjöldi glæsilegra fyrirtækja og einstaklinga taka þátt í deginum í ár og má nefna Borgarleikhúsið, Áltak, RÚV, Brim, Rio Tinto Alcan, Isavia, Ljósleiðarinn, Veitur og Isavia.

Nemendur eiga kost á að sækja kynningar í Tækniskólanum á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði. Athugið að nemendur þurfa að koma sér sjálfir á staðinn nema að annað sé tekið fram.
Gert er ráð fyrir að nemendur sæki að jafnaði tvo viðburði þennan dag. Flestar fyrirtækjaheimsóknir eru með fjöldatakmarkanir og mun skráningu loka þegar hámarksfjölda er náð. Því er um að gera að kynna sér dagskrána vel um og tryggja sér pláss sem fyrst.

Dagskrá má lesa HÉR

Skráning

Skráning hefst föstudaginn 19. september klukkan 10:30 og nemendur eru beðnir um að skrá sig í síðasta lagi kl. 17:00 mánudaginn 22. september.

Viðburðir hafa ákveðinn hámarksfjölda þátttakenda og verður skráningu lokað þegar ekki er lengur laust pláss.

Hlekkur á skráningarskjal má nálgast HÉR föstudaginn 19. september, eftir klukkan 10:30.