Menu

Fréttir

16. september 2026

Tækniskóladagurinn 2026

Tækniskóladagurinn verður haldinn í fjórða sinn fimmtudaginn 24. september.

Markmið dagsins er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og gefa þeim tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum sem tengjast þeim fagsviðum sem kennd eru við Tækniskólann.

Fyrirkomulag og dagskrá

Nemendum býðst bæði að heimsækja fyrirtæki og sækja áhugaverðar kynningar í skólanum. Gert er ráð fyrir að hver nemandi sæki að jafnaði tvo viðburði yfir daginn.

Hefðbundin stundatafla gildir ekki á Tækniskóladeginum og þurfa nemendur þess í stað að skrá sig á viðburði fyrir fram. Fjöldatakmarkanir eru í flestar fyrirtækjaheimsóknir og lokar skráning þegar hámarksfjölda hefur verið náð. Því er mikilvægt að kynna sér dagskrána tímanlega og tryggja sér pláss sem fyrst. Athugið að nemendur þurfa sjálfir að koma sér til viðkomandi fyrirtækis nema annað sé tekið fram í auglýsingu.

Ef nemendur finna ekki staðfestingu á skráningu sinni í tölvupósti geta þau hringt í síma 5149044 eða sent tölvupóst á [email protected] til að fá upplýsingar um skráningu. 

 

Boðið verður upp á rútuferðir í eftirfarandi heimsóknir:

  • Rafal – Rútuferð kl. 13:00 frá Tækniskólanum í Hafnarfirði.
  • Límté Vírnet – Rútuferð kl. 12:00 frá Tækniskólanum í Hafnarfirði.
  • RioTinto – Rútuferð kl. 12:45 frá Tækniskólanum í Hafnarfirði.

Hér er hlekkur á dagskrá Tækniskóladagsins 2026.