Tækniskólinn framhaldsskólameistari í rafíþróttum

Rafíþróttalið Tækniskólans sigraði í úrslitum Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, FRÍS, eftir æsispennandi viðureign við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Liðið heitir Tæknó E-sports og er skipað nemendum úr tölvubraut, rafvirkjun, opinni braut, í Raftækniskólanum og múraraiðn. Liðið keppti í þremur vinsælum leikjum: Counter-Strike 2, Rocket League og Mario Kart World.
Úrslitaleikurinn fór fram miðvikudaginn 22. apríl í Arena Gaming við Smáratorg 3. Margir fylgdust einnig með leikjunum í beinni útsendingu á Twitch:
Hér má sjá upptöku á úrslitakeppninni.
Vigfús Karl Steinsson, þjálfari liðsins, er gríðarlega ánægður með árangur liðsins.
„Ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Þau hafa öll sýnt sig og sannað sem framúrskarandi einstaklingar og ég er þakklátur fyrir tímabilið með þeim!“
Hér má sjá hvernig liðin voru skipuð.
Counter-Strike 2
Arngrímur Dagur Arnarsson
Örn Snævar Alexandersson
Elías Kári Sigurðarson
Peter Brendan Silva
Þórir Gauti Ásuson
Benjamín Elí Helguson
Rocket League
Dagur Hrafn Ragnarsson
Teitur Bjarmi Jónmundsson
Matthías Ragnar Wiencke
Birkir Freyr
Mario Kart World
Elin Sara Gísladóttir
Dagur Örvarsson
Við óskum liðinu okkar innilega til hamingju með árangurinn og hvetjum öll til að fylgjast áfram með uppbyggingu rafíþrótta í Tækniskólanum.