Menu

Fréttir

16. apríl 2025

Tækniskólinn sigrar í FRÍS

Flottur árangur hjá liðinu okkar!

Rafíþróttalið Tækniskólans fagnaði sigri í úrslitum FRÍS, Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands, eftir spennandi viðureign við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Liðið, sem skipað er nemendum úr tölvubraut, skipstjórn, pípulagnabraut, grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina, íslenskubraut og rafvirkjun, keppti í þremur vinsælum leikjum: Counter-Strike, Rocket League og Fortnite.

Samheldni og alúð við verkefnið skiluðu liðinu alla leið og tryggðu þeim verðugan sigur eftir frábæra frammistöðu í keppninni.

Úrslitaleikurinn fór fram miðvikudaginn 16. apríl í Arena Gaming við Smáratorg 3. Margir fylgdust einnig með leikjunum í beinni útsendingu á Twitch:
🔗 www.twitch.tv/rafithrottir

Við óskum liðinu okkar innilega til hamingju með árangurinn og hvetjum öll til að fylgjast áfram með uppbyggingu rafíþrótta í Tækniskólanum.
Áfram Tæknó!