26. mars 2024
Þríhyrningurinn
LAN Tækniskólans
Þríhyrningurinn – LAN Tækniskólans verður haldið helgina 5.–7. apríl í matsal Tækniskólans við Skólavörðuholt. LAN-ið er opið nemendum Tækniskólans og hægt er að skrá sig hér. Nemendur skólans geta boðið einum gesti með sér, alveg eins og á skólaböllum.
Skráning:
- Takmarkað pláss er á LAN-inu og mótinu – Reglan fyrstur kemur fyrstur fær gildir.
- Miði á mótið kostar 3.990 kr. en það er fyrir eitt borð eða venjulegt kennsluborð.
- Tvöfalt pláss kostar 7.990 kr. en það má samt bara koma með einn skjá og takmarkaður fjöldi er í boði af stærri borðplássi.
- Mótið er aðeins fyrir skráða þátttakendur en ef þú vilt bara fylgjast með mótinu og LAN-inu, kaupa mat eða spila borðspil – þá kostar 500 kr. inn.
- Fríar Bæjarins beztu pylsur á föstudeginum og frír hafragrautur og ávextir í morgunmat á laugardegi.
Skráningu lýkur föstudaginn 22. mars. Þá fá skráðir nemendur tölvupóst með hlekk á miðasöluna. Nánari upplýsingar um mótið verða sendar á skráða þátttakendur eftir að miði hefur verið greiddur.

Mót:
- CS2
- Valorant
- Rocket League
- Minecraft
Dagskrá:
- Föstudagur 5. apríl
Kl. 18:00–02:00
Fyrsta mót byrjar kl. 20:15 - Laugardagur 6. apríl
Kl. 11:00–00:00 - Sunnudagur 7. apríl
Kl. 11:00–15:00
Ef spurningar vakna þá má spyrja í skráningarforminu.