09. desember 2018
Þrjár konur í pípulagnanámi
Af hverju eru ekki fleiri stelpur í þessu námi?
Mjög líflegt og gott viðtal er að finna í FIT blaðinu við þessar þrjár hressu stelpur sem skelltu sér út í djúpu laugina eins og þær segja sjálfar í viðtalinu. Bryndís Heiða, Eyja og Ágústa eru hæstánægðar með námið og vilja hvetja fleiri til að skoða möguleikana sem iðnnám veitir.
Hér er FIT – blaðið og hægt að lesa viðtalið á bls. 32
Einnig er í blaðinu frábært viðtal við kennarann þeirra í pípulögnum hann Gunnar Sigurjónsson. Hann fjallar m.a. um hvernig aukin kynningarvinna er að skila sér í aukinni aðsókn í iðnnám.
Myndir með frétt eru skjáskot úr FIT blaðinu