Menu

Fréttir

04. febrúar 2026

Þróunarverkefni í grafískri miðlun

Spjaldanna á milli er heiti á samstarfsverkefni Tækniskólans og Iðunnar fræðsluseturs sem snýr að endurnýtingu bókakápa og leiðum til að viðhalda og miðla hefðbundnu bókbandi. Nemendur í grafískri miðlun og prentsmíði tók þátt í verkefninu, sem er hluti af svakallaðri Pappírsviku sem haldin var í fyrsta skipti á Íslandi. Pappírsvikan er alþjóðlegt samstarfsverkefni í tengslum við Two Slides og lovepaper.org.

Verkefnið var kynnt 3. febrúar þar sem Kristjana Guðbrandsdóttir, hjá Iðunni, hélt kynningu um verkefnið og nemendur sýndu afraksturinn.

 

Svakalega stolt af verkefninu

Svanhvít Stella Ólafsdóttir, kennari í grafískri miðlun og prentsmíði, segir verkefnið hafa verið einstaklega skemmtilegt.

„Nemendur í grafískri miðlun og prentsmíði þurfa einnig að búa yfir þekkingu á bókbandi og prentun, þannig að við tókum hugmyndinni fagnandi þegar Kristjana hjá Iðunni bar hana fyrst upp í desember.“

Verkefnið hófst með heimsókn í Góða hirðinn þar sem nemendurnir völdu sér gamlar bækur til þess að vinna með.

„Stefán Jón, sem er algjör sérfræðingur í bókbandi, kom með okkur og hjálpaði nemendum að velja bækur sem hentuðu vel í verkið. Þau hafa síðan unnið að verkefninu í tímum bæði hjá mér og Marinó Önundarsyni. Steinunn A. Magnýjardóttir, nemandi í grafískri miðlun og prentsmíði sem stefnir að því að verða bókbindari, leiddi einnig verkefnið að stórum hluta, sem var sérstaklega skemmtilegt.“

Eftir heimsóknina í Góða hirðinn fjarlægðu nemendurnir innihald bókanna og settu bókakubbinn aftur í gamla bindið, samkvæmt kúnstarinnar reglum.

„Þetta gekk mjög vel og þau gerðu öll eina bók, sum fleiri. Það er sérstaklega skemmtilegt að vinna verkefni sem tengist að svo stórum hluta umhverfisvernd, þar sem við erum vissulega að endurvinna bókakápurnar,“ segir Svanhvít.

Aðspurð segir hún að Spjaldanna á milli sé verkefni sem grafísk miðlun og prentsmíði  geta vel hugsað sér að taka upp aftur.

„Það er líka gaman að nemendurnir fá að uppskera og halda sýningu, fólk kemur að skoða verkin og þau fá jafnframt að taka á móti fólki úr atvinnulífinu og kynna afraksturinn. Við erum rosalega stolt af þessu,“ segir Svanhvít að lokum.