21. október 2024
Þú breytir öllu
Bleiki dagurinn 2024

Miðvikudaginn 23. október er bleiki dagurinn sem er hluti af árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að aðstandendum undir slagorðinu Þú breytir öllu.
Við viljum þakka þeim sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast – aðstandendum.
Tækniskólinn tekur að sjálfsögðu þátt og við hvetjum nemendur og starfsfólk til þess að mæta í bleiku þann 23. október næstkomandi svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.
Í tilefni dagins býður skólinn starfsfólki og nemendum bleikt bakkelsi og svo er von á óvæntu bleiku slikkeríi.