Menu

Fréttir

18. maí 2026

Tímaritið Askur er komið út

Tímaritið Askur er komið út, bæði í prentaðri útgáfu og á vefnum vorið 2026. Askur er sameiginlegt lokaverkefni nemenda í grafískri miðlun, bókbandi og prentun við Tækniskólann og endurspeglar fjölbreytt verkefni þeirra á lokastigi námsins.

Askur er nú aðgengilegur á vefnum og sýnir vel þá fjölbreyttu hæfni sem nemendur í grafískri miðlun tileinka sér í náminu, allt frá ritstjórn og hönnun til ljósmyndunar, umbrotavinnu og prentunar.

Hér er hægt að skoða tímaritið Ask á vefnum.

Opið er fyrir umsóknir í grafíska miðlun.