Átök

ÁTÖK er yfirskrift tískusýningar sem nemendur á fataiðnbraut Tækniskólans og Fjölbrautaskólans í Breiðholti standa að í samstarfi við Unglist.
Til þess að fræðast betur um þessa sýningu tókum við tvo nemendur Tækniskólans tali, það eru þau Ásta María og Daníel Ísar, sem eru nemendur í Fatatækni. Bæði stefna þau á nám erlendis og fatahönnunarnám þá helst. En tískusýningin framundan er einmitt frábær vettvangur fyrir nemendur sem eru hanna og sauma eigin flíkur, segir Ásta María.
„Ég mæli með að öll sem hafa áhuga á fatahönnun og bara flottri sýningu nýti tækifærið og komi á laugardaginn.“
Tískusýningin fer fram í Hinu húsinu – við Rafstöðvarveg 7 í Reykjavík – laugardaginn 2. nóvember klukkan 19:30 og er frítt inn.
Daníel Ísar segir þema sýningarinnar, sem er átök, hafa komið upp þegar nemendur voru að velta fyrir sér umgjörð og yfirskrift. Hann segir þetta vera samnefnara fyrir svo margt, eins og átökin allt í kringum okkur, en líka átökin innra með okkur. Ásta María tekur undir það og segir þau hafa verið með enska orðið conflict í huga. Og það er margt í veröldinni sem einkennist af átökum í dag, þetta þema getur því haft margræða meiningu.
„Þetta verður upplifun“ segir Daníel og hann vonar að sem flest mæti.