To Belong
Miðvikudaginn 30. apríl opnar ljósmyndasýningin To Belong í Norræna húsinu í Vatnsmýri. Um er að ræða norrænt samstarfsverkefni sem fjórir nemendur af ljósmyndabraut Tækniskólans taka þátt í ásamt tólf öðrum nemendum frá Norðurlöndunum. Opnunin stendur frá klukkan 17:00 til 19:00 og er sýningin opin öllum.
Nemendur af ljósmyndabraut Tækniskólans hafa undanfarin fjögur ár verið í samstarfi við skóla í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og núna nýlega í Danmörku. Hluti af samstarfinu er umrædd ljósmyndasýning sem mun standa opin, í Norræna húsinu að Sæmundargötu 11, dagana 30. apríl til og með 11. maí. Nemendum er gefið ákveðið þema ár hvert og þau beðin um að túlka það í syrpu af ljósmyndum. Þemað í ár er unnið út frá setningunni: To Belong.
Einn til fjórir nemendur frá hverjum skóla eru valin til að taka þátt í ljósmyndasýningum víðsvegar um Norðurlöndin. Fyrsta sýningin var í Finnlandi í Porvoo í febrúar og í Helsinki í mars og loks í Kaupmannahöfn í byrjun þessa mánaðar. Tveir af nemendum Tækniskólans fóru til Danmerkur til að vera viðstaddir opnunarhátíðina þar. Síðustu vikur hafa nemendurnir skólans verið á fullu að undirbúa sýninguna í Norræna húsinu.
Nemendurnir fjórir frá Tækniskólanum eru:
- Aron Hugi Guðmundsson
- Regína Jóhannesdóttir
- Sindri Freyr Daníelsson
- Viðar Justinas Jónsson
Vert er að nefna að inngangur um verkin er skrifaður af A.D Coleman, sem er þekktur ljósmyndagagnrýnandi, rithöfundur og sagnfræðingur og hefur m.a. skrifað greinar í the New York Times og Villalge Voice.
Við hvetjum fólk til þess að mæta á sýninguna og virða fyrir sér verk nemenda í ljósmyndun.
Hér er hlekkur á Facebook viðburð sýningarinnar.