Menu

Fréttir

10. október 2025

Íslensku Menntaverðlaunin

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 voru tilkynntar í vikunni. Fulltrúar Tækniskólans eru tilnefnd í tveimur flokkum. Annars vegar er fataiðndeild Tækniskólans tilnefnd fyrir einstaklega metnaðarfulla og faglega kennslu. Hins vegar er Gunnar Sigurjónsson, kennari á pípulagningabraut, tilnefndur fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi. Við óskum þeim innilega til hamingju. Þann 5. nóvember verður á dagskrá RÚV þáttur um verðlaunaveitinguna, tilnefningarnar og verðlaunahafanna.

Kennarar á fataiðndeild komu saman í myndatöku, ásamt Hildi Ingvarsdóttur skólameistara og Söndru Borg skólastjóra Hönnunar- og handverksskólans, þar sem tilnefningunni var fagnað. Á fataiðndeild Tækniskólans starfar samhentur hópur sjö kennara sem leggja mikinn metnað í öll sýn verk og sinna nemendum af einstakri mildi. Á fataiðndeild má velja um nám í klæðskurði, kjólasaum og fatatækni. Auk fataiðndeildar Tækniskólans eru eftirfarandi aðilar tilnefnd í flokknum framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar:

  • Fataiðndeild Tækniskólans fyrir einstaklega metnaðarfulla og faglega kennslu.
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum fyrir framúrskarandi nám í málm- og vélstjórnargreinum.
  • Unnar Þorsteinn Bjartmarsson, grunn- og framhaldsskólakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir að kveikja áhuga nemenda á iðn- og verknámi.

Við náðum tali af Gunnari Sigurjónssyni, sem er tilnefndur fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi, í flokknum framúrskarandi kennslu. Gunnar var orðlaus þegar hann fékk fréttirnar var hann orðlaus og meir.

„Ég hef fyrst og fremst verið þakklátur og glaður yfir því að mínir nemendur kunna að meta framlag mitt. Mér hefur þótt sérstaklega vænt um að fá skilaboð frá fyrrum nemendum sem telja þetta verðskuldað. Það yljar. Annars finnst mér að þegar maður horfir í kringum sig á kaffistofunni að hver sem er í kringum mann gæti fengið og ætti skilið svona tilnefningu.“

Aðrir sem eru tilnefndir í flokknum með Gunnar eru eftirfarandi:

  • Gunnar Ásgeir Sigurjónsson, framhaldsskólakennari á pípulagningabraut Tækniskólans, fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi.
  • Hjördís Óladóttir, grunnskólakennari við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, fyrir skapandi og fjölbreytta kennsluhætti og námsumhverfi í byrjendakennslu.
  • Ingibjörg Jónasdóttir, leikskólakennari við leikskólann Rauðhól í Reykjavík, fyrir farsælt brautryðjendastarf í leikskólakennslu.
  • Laufey Einarsdóttir, grunnskólakennari í Sæmundarskóla í Reykjavík, fyrir faglega, hugmynda- og árangursríka stærðfræðikennslu.
  • Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fyrir sérlega árangursríka íþróttakennslu.