Menu

Fréttir

02. maí 2024

Tvöföld útskriftarsýning

Verk nemenda í grafískri miðlun og ljósmyndun

Miðvikudaginn 8. maí kl. 16:00–18:00 munu nemendur í grafískri miðlun og nemendur í ljósmyndun halda sýningar í Sjómannaskólahúsi Tækniskólans á Háteigsvegi. Sýningar á verk­efnum nem­enda Upp­lýs­inga­tækni­skólans eiga sér langa sögu og gefa góða innsýn í hið yfir­grips­mikla nám sem þar fer fram.

Útskriftarsýning ljósmyndanema verður haldin á 2. hæð og þar gefur að líta afrakstur skólaársins. Að þessu sinni eru þrettán nemendur að útskrifast og er þetta frábært tækifæri til að sjá þeirra glæsilegu verk.

Útskriftarsýning grafískrar miðlunar verður haldin á 3. hæð og á Háteigsvegi og þar gefur að líta fjöl­breytt verk nemenda. Boðið verður upp á veitingar fyrir gesti og gangandi.

Endi­lega kíkið við og fagnið þessum stóra áfanga með nem­endum!