fbpx
Menu

Fréttir

05. mars 2021

Undanúrslit Gettu betur

Undanúrslit Gettu betur

Eftir sannfærandi sigur á FÁ í 8-liða úrslitum tryggði lið Tækniskólans sér sæti í undanúrslitum í fyrsta skiptið í sögunni.

Andstæðingar Tækniskólans að þessu sinni er lið Verzlunarskóla Íslands. Keppnin fer fram kl. 19:40 föstudagskvöldið 5. mars og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Sem fyrr eru það Auður Aþena Einarsdóttir, Þorsteinn Magnússon og Emil Uni Elvarsson sem skipa lið Tækniskólans.