Menu

Fréttir

06. ágúst 2026

Upphaf haust­annar 2026

Kennsla á haustönn 2026 hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 18. ágúst. Föstudaginn 14. ágúst verður opnað fyrir stundatöflur haustannar í Innu.

Opið verður fyrir töflubreytingar dagana 14. og 15. ágúst. Nánari upplýsingar um töflubreytingar má finna á vef skólans. Töflubreytingar fara fram rafrænt í Innu og eru eingöngu ætlaðar nemendum sem fengu ekki þá áfanga sem þeir völdu eða ef verulegir annmarkar eru á stundatöflu miðað við áfangaval.

Frekari upplýsingar varðandi annarbyrjun má finna hér.

Nýnemamóttaka

Nýnemum undir 18 ára verður boðið til sérstakrar móttöku í Tækniskólanum mánudaginn 17. ágúst.
Þar fá nemendur kynningu á skólalífinu, stoðþjónustu, félagsmálum og öðru sem gott er að vita áður en kennsla hefst þriðjudaginn 18. ágúst. Boðið verður upp á hressingu.

Nánari upplýsingar um nýnemamóttökuna verða sendar í tölvupósti til nýnema og forráðamanna þeirra.

Dagskráin hefst á eftirfarandi tímum:

  • Skólavörðuholt – kl. 09.00
  • Háteigsvegur – kl. 11.00
  • Hafnarfjörður – kl. 13.00

Hægt er að smella á myndina hér að neðan til að sjá hvaða námsbrautir eru kenndar á hverjum stað.

Foreldrafundur nýnema verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst.