fbpx
en
Menu
en

Fréttir

03. janúar 2021

Upphaf vorannar 2021

Kæru nemendur í Tækniskólanum (English below)

Starfsmenn skólans vinna nú hörðum höndum að því að skipuleggja kennslu næstu vikna út frá sóttvarnarreglum sem tóku gildi 1. janúar en eins og komið hefur fram verður önninni skipt í tvær svokallaðar spannir. Stundatöflur fyrir fyrri spönn eiga að vera sýnilegar í Innu eftir hádegi þriðjudaginn 5. janúar og kennsla hefst fimmtudaginn 7. janúar.

Ný reglugerð miðar að því að hægt sé að bjóða upp á meira staðnám en var fyrir jól. Við reiknum með að verkleg kennsla verði að mestu á hefðbundinn hátt en að bókleg kennsla fari fram í blöndu af stað- og fjarnámi og í sumum tilvikum fullu staðnámi. Þá verður starfsbraut alfarið í staðnámi. Hvernig þetta verður útfært fyrstu vikurnar verður ljóst á miðvikudaginn og bið ég ykkur því um að bíða róleg eftir upplýsingum um það sem munu birtast bæði á vefsíðu skólans og í pósti til nemenda þann dag.

Bestu kveðjur,

Hildur skólameistari

 

Dear students in Tækniskólinn

We are at the moment working hard on planning the teaching for the next weeks in light of new restrictions on gatherings that took effect on 1st of January. As previously mentioned the term will be split into two parts that we call ,,spönn” (singular) or ,,spannir” (plural). Your timetable should be visible in Inna on Tuesday afternoon the 7th.

The change in restrictions on social gatherings allow for more on-site teaching than was possible before Christmas. If nothing changes in society regarding COVID for the next few days, vocational courses will most be run in a conventional on-site fashion but the academic classes will most be taught through a blend of on-site and remote teaching (in some cases completely on-site). You will get further information on how your classes will be run on Wednesday by e-mail and general information will be available online as well.

Best regards,

Hildur principal