Menu

Fréttir

18. maí 2024

Uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð nemenda í stafrænni hönnun fer fram í Grósku hugmyndahúsi þriðjudaginn 21. maí. Húsið opnar kl. 14:30 og sýningin hefst kl. 15:00.

Á hátíðinni fögnum við saman annarlokum 1. árs nema og námslokum útskriftarnema sem munu sýna verkefni sem hafa verið unnin í vetur. Til sýnis verða verkefni í 3D módelingu, teiknimyndagerð, tölvuleikjum, tæknibrellum, karakterhönnun, Storyboards, Digital Fashion og Material Design.

Boðið verður upp á spjall eftir sýninguna og tækifæri gefst til að prófa tölvuleiki nemenda.

Verið öll velkomin!