Menu

Fréttir

17. maí 2024

Úrslit í hönnunarsamkeppni

Verðlaunaafhending

Úrslit í hönnunarsamkeppni Tækniskólans voru kynnt fimmtudaginn 16. maí þar sem Harpa Hua Zi Tómasdóttir og Karen Eva tóku við verðlaunum.

Sér­stök dóm­nefnd var skipuð til að meta til­lögur sem bárust í keppnina og var markmiðið að hanna nýtt útlit fyrir matsal nem­enda á Skólavörðuholti. En á veggjum mat­salarins eru hljóðdemp­andi plötur sem eru nú skreyttar með ljós­myndum. Þátt­tak­endur í keppn­inni fengu það verk­efni að koma með til­lögur að nýju útliti fyrir þessar plötur.

Nem­endur af öllum brautum skólans höfðu rétt á að taka þátt í keppn­inni og var þátttaka með ágætis móti.

Þema hönnunarinnar voru gildi skólans:

  • Alúð
  • Framsækni
  • Fjölbreytileiki

Veitt voru verðlaun fyrir tvö verk­efni og hlutu báðir sig­ur­veg­arar peningaverðlaun að fjárhæð 100.000- kr.

Karen Eva leitaði innblásturs í íslenska myndlist og nefndi hún sérstaklega málverk Kjarvals. Einnig speglaði hún gildi skólans í ljóðum frá íslenskum skáldum og koma sú nálgun fyrir algjöra tilviljun, eins og hún segir sjálf:

„Ég fann ljóðabók, þegar ég var að vinna í þessu verkefni, þar sem ég las ljóð sem mér fannst passa svo vel við gildið alúð.“

Hugmyndin að verkum Hörpu kviknaði út frá gæludýrinu hennar sem er dísargaukur. Hún sótti í framhaldinu innblástur í náttúruna og fuglalífið:

„Það mætti líkja nemendum Tækniskólans að vissu leyti við fugla því þeir eru með ólíkan karakter og virkilega fjölbreyttir.

Við óskum Hörpu og Karen Evu hjartanlega til hamingju!