Útskrift skólans vor 2020
Útskrift Tækniskólans fer fram föstudaginn 29. maí næstkomandi í Eldborgarsal Hörpu. Vegna Covid- 19 verður útskriftinni skipt í tvær athafnir, sú fyrri hefst kl.12:00 og sú seinni kl.15:00 – það má gera ráð fyrir að hvor athöfn fyrir sig taki u.þ.b. 1,5klst.
Útskriftarathöfn verður streymt beint á Youtube:
Fyrri athöfn kl. 12:00
Seinni athöfn kl. 15:00
Hver útskriftarnemandi getur tekið með sér tvo gesti og eru þessi viðmið ófrávíkanleg, því miður. Miðasala Hörpu sér um úthlutun miða fyrir gesti nemenda og það verður hægt að sækja miða frá og með þriðjudeginum 26. maí. Nánari upplýsingar veitir miðasala Hörpu í síma 528-5050 og í gegnum netfangið [email protected]
Þess ber að geta að útskriftarnemendur sitja í merktum sætum í sal (neðsta hluta Eldborgarsal) en það skal tekið skýrt fram að nemendur sitja í öðru hvoru sæti og strangt til tekið ekki boðið uppá 2 metra á milli fólks í salnum.
Nemendur eru beðnir um að mæta 30 mínútum fyrir athöfn. Salurinn verður opnaður fyrir gestum 15 mínútum síðar.
Skipting námsbrauta á milli athafna er sem hér segir:
1. Athöfn – kl.12:00
• Tæknimenntaskólinn
• Raftækniskólinn
• Handverksskólinn
• Byggingatækniskólinn
• Skipstjórnarskólinn
• Véltækniskólinn
2. Athöfn – kl. 15:00
• Upplýsingatækniskólinn
• Tækniakademían
– Stafræn hönnun
– Vefþróun
– Meistaraskólinn
Sjáumst í sparifötunum á föstudaginn!