en
Menu
en

Fréttir

03. desember 2025

Útskrift Tækni­skólans

Upplýsingafundur

Hér má sjá upptöku af upplýsingafundi sem haldinn var fyrir útskrift­ar­nem­endur þann 4. des­ember.

Við hvetjum þá útskrift­ar­nem­endur sem misstu af fund­inum til þess að horfa á upp­tökuna.

Útskrift Tækniskólans

Útskrift Tækni­skólans á haustönn 2025 fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, sunnudaginn 21. desember. Athöfnin hefst stund­vís­lega kl. 13:00 og nem­endur eru beðnir um að mæta klukku­stund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið klukkan 12:00 í Eldborgarsal.

Útskrift­ar­nem­endum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina náms­braut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nem­andi, hefur leyfi til að bjóða þremur gestum með á athöfnina.

Hér eru nokkur praktísk atriði sem nemendur þurfa að vita:

  • Nemendur mæta klukkan 12:00 í Eldborgarsal Hörpu
  • Öðrum gestum er hleypt inn í salinn 20 mínútum fyrir athöfn
  • Hámarksfjöldi gesta pr. nemanda eru þrír
  • Lengd athafnar eru rúmlega 2 klst.
  • Snyrtilegur klæðnaður er skilyrði

Ath. Ef nem­andi er að útskrifast af tveimur náms­brautum – t.d. sem stúdent og klæðskeri – þá fær viðkom­andi nem­andi bæði burt­far­ar­skír­teini í einu við útskrift.

Beint streymi verður sent út frá viðburðinum. Hlekkur fyrir streymi má nálgast á vefsíðu skólans, sunnudaginn 21. desember.