fbpx
en
Menu
en

Fréttir

19. desember 2022

Útskrift Tækniskólans á haustönn 2022

Útskrift á haustönn 2021Útskrift Tækni­skólans á haustönn 2022 fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, þriðjudaginn 20. desember. Athöfnin hefst stund­vís­lega kl. 13:00, en nem­endur eru beðnir um að mæta klukku­stund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið klukkan 12:00 í Eldborgarsal.

Útskrift­ar­nem­endum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina náms­braut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nem­andi, hefur leyfi til að bjóða fimm gestum með á athöfnina.

Hér eru nokkur praktísk atriði sem nemendur þurfa að vita:

  • Nemendur mæta klukkan 12:10 í Eldborgarsal Hörpu
  • Öðrum gestum er hleypt inn í salinn 20 mínútum fyrir athöfn
  • Hámarksfjöldi gesta pr. nemanda eru 5 gestir
  • Lengd athafnar er u.þ.b. 2 klst.
  • Snyrtilegur klæðnaður er skilyrði

Hér má sjá beint streymi frá athöfn­inni.

Ath. Ef nem­andi er að útskrifast af tveimur náms­brautum – t.d. sem stúdent og klæðskeri – þá fær viðkom­andi nem­andi bæði burt­far­ar­skír­teini í einu við útskrift.