en
Menu
en

Fréttir

08. apríl 2026

Útskrift Tækniskólans á vorönn 2026

Útskrift Tækniskólans á vorönn 2026

Útskrift Tækniskólans á vorönn 2026 mun fara fram laugardaginn 30. maí í Hörpu. Tvær athafnir verða að þessu sinni. Fyrri athöfn hefst klukkan 11:00 og síðari athöfn klukkan 14:00 og fara báðar athafnir fram í Silf­ur­bergi. Útskrift­ar­nemar eiga að mæta 45 mín­útum áður en athöfn hefst.

Útskrift­ar­nem­endum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina náms­braut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nem­andi, hefur leyfi til að bjóða tveimur gestum með á athöfnina. Snyrti­legur klæðnaður er skilyrði. Hlekkur á beint streymi frá útskrift­inni verður birt á vefsíðu skólans þann 30. Maí.

Hér eru nokkur praktísk atriði sem nem­endur þurfa að vita:

Nem­endur í fyrri athöfn mæta klukkan 10:15 og lengd athafnar er áætluð 1,5 klst.

Fyrri athöfn – 11:00

  • Tæknimenntaskólinn
  • Byggingatækniskólinn
  • Hönnunar- og handverksskólinn

Nem­endur í seinni athöfn mæta klukkan 13:15 og lengd athafnar er áætluð 1,5 klst.

Seinni athöfn – 14:00

  • Raftækniskólinn
  • Véltækniskólinn
  • Skipstjórnarskólinn
  • Upplýsingatækniskólinn
  • Meistaraskólinn

Útskriftarnemendur fá fundarboð á sérstakan upplýsingafund þegar nær dregur. Gert er ráð fyrri að fundurinn fari fram á Teams þriðjudaginn 12. maí.