04. maí 2021
Útskriftarsýning í grafískri miðlun
Útskriftarsýning 2021
Þessa dagana vinna nemendur í grafískri miðlun hörðum höndum að því að setja upp rafræna útskriftarsýningu sem haldin verður föstudaginn 7. maí kl. 15:00.
Mikið er lagt upp úr því að gera sýninguna bæði áhugaverða og skemmtilega en tilgangur hennar er m.a. að vekja athygli atvinnulífsins á útskriftarefnunum.
Endilega kíkið inn á sýningarvefinn þann 7. maí og fagnið þessum áfanga með þeim.
Allir velkomnir!