Spennandi útskriftarsýningar framundan
Í desember standa yfir skemmtilegar sýningar í Tækniskólanum þar sem sjá má afrakstur fjölbreyttrar og skapandi vinnu nemenda yfir veturinn.
Útskriftarsýning í grafískri miðlun og bókbandi
Föstudaginn 5. desember kl. 15:00–17:00 verður útskriftarsýning og opnunarhóf í húsnæði sérsviða Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun, prentun, bókbandi og ljósmyndun í Vatnsholti 39.
Fimm nemendur úr grafískri miðlun og einn nemandi úr bókbandi ljúka nú námi og hafa, í nánu samstarfi við kennara sína, séð um skipulagningu, uppsetningu og kynningu sýningarinnar.
Markmið sýningarinnar er að vekja athygli atvinnulífsins á útskriftarnemunum, sem nú eru á leið í starfsþjálfun og undirbúa sig fyrir sveinspróf.
Fyrirtækjum innan greinanna, sem og ættingjum, vinum og öllum áhugasömum, er boðið að koma og fagna þessum mikilvæga áfanga með nemendunum og fá innsýn í fjölbreytt og skapandi verkefni vetrarins.
Sýningin verður einnig opin dagana 8. og 9. desember frá kl. 10:00–14:00.
Nemendurnir halda einnig úti Instagram-reikningum @grm.indd þar sem fylgjast má með undirbúningi sýningarinnar.

Útskriftarsýning nemenda í húsasmíði og húsgagnasmíði
Útskriftarsýning nemenda í húsasmíði og húsgagnasmíði verður haldin 15. desember kl. 09:00 – 18:00 í húsnæði Byggingatækniskólans við Skólavörðuholt.
Í ár sýna nemendur sethúsgögn og plötu- og grindarhúsgögn. Nemendur unnu verkefni sín í samstarfi við Grétar Árnason hjá GÁ Húsgögnum, sem leiðbeindi þeim í bólstrun.
Útskriftarsýningin er kjörið tækifæri til þess að kynna sér það fjölbreytta of nákvæma handverk sem nemendur í húsasmíði og húsgagnasmíði hafa unnið að yfir veturinn.
Verið öll innilega velkomin á Skólavörðuholtið.
