05. desember 2024
Útskriftarsýning í grafískri miðlun og prentun

Föstudaginn 6. desember kl. 15:00–17:00 verður útskriftarsýning og opnunarhóf í nýju húsnæði sérsviða Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun, prentun, bókbandi og ljósmyndun.
Útskriftarnemendur í grafískri miðlun og prentun munu sýna lokaverkefni ásamt öðrum verkum úr náminu.
Einnig verður opið inn í allar kennslustofur þar sem sjá má aðstæður, tæki og tól ásamt verkefnum nemenda á fyrri önn grafískrar miðlunar, ljósmyndanema og nemenda í grunnnámi m.a. bókbandi.
Nú eru sérsviðið staðsett í Vatnsholti 39, rétt austan við Sjómannaskólabygginguna á Háteigsvegi en hér má sjá TikTok myndband um nánari staðsetningu.
Nemendur taka vel á móti gestum með kaffi og meðlæti. Endilega kíkið við og fagnið deginum með þeim!