Menu

Fréttir

16. febrúar 2026

Valvika 16.-19. febrúar

Staðfesting á skólavist

Í valvikunni 16.-19. febrúar staðfesta nemendur í dagskóla umsókn sína um áframhaldandi skólavist á næstu önn. Það er gert með því að yfirfara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skólagjöld. Þá þurfa þeir ekki að sækja aftur formlega um skólavist.

Hér má sjá nánari leiðbeiningar um áfangaval og brauta­skipi. Nem­endum er einnig boðin aðstoð við valið í val­viku.

Athugið að valvikan á ekki við um nemendur sem eru á brautum í flugvirkjun, hljóðtækni, meistaraskóla, stafrænni hönnun, vefþróun eða í almennu dreifnámi.

 

Brautaskipti

Umsókn um brauta­skipti fer fram í Innu. Nem­endur sem hyggja á að skipta um braut og eða þeir sem eru að ljúka grunn­brautum og þurfa að velja sér fram­halds­braut. Skóla­stjóri afgreiðir brauta­skipti og samhliða velur og staðfestir áfanga fyrir næstu önn. Síðasti dagur til að óska eftir braut­ar­skiptum er í lok föstu­dags í val­viku.

 

Upplýsingar og leiðbeiningar

Leiðbeiningar vegna vals – nemendur

Leiðbeiningar vegna brautaskipta – nemendur

Valvika – opið val

Námsskipulag allra brauta

Stúdentspróf af fagbraut 

Myndræn útskýring á áfangaheitum

Leiðbeiningar vegna valviku – fyrir starfsfólk

 

Vinnustaðanám

Nem­endum á náms­brautum sem inni­halda vinnustaðanám er sér­stak­lega bent á að skoða náms­skipulag braut­ar­innar og leita aðstoðar í valinu ef á þarf að halda. Mik­il­vægt er að skoða hvort það er tíma­bært á næstu önn, t.d. ef aðeins loka önn er eftir. Nem­endur sem eru komnir með samn­ingspláss eru minntir á að sækja um að skólinn geri námssamning og stofni fer­ilbók. Sjá nánar um vinnustaðanámið hér.

Nemendur sem verða eingöngu í vinnustaðanámi á næstu önn

  • þurfa að láta skólastjóra vita (verða þá merktir í INNU „eingöngu vinnustaðanám á næstu önn“ )
  • þurfa að muna að sækja um að skólinn geri samning og ferilbók þegar pláss er fundið (ef það er ekki búið)
  • greiða ekki skólagjöld haustannar        

 

Vinnustaðanám – hvenær, hvernig, hvað?

Vinnustaðanám er hluti af iðnnámsbrautum til að útskrifast – og geta þar með sótt um að fara beint í sveinspróf. Hér má sjá upplýsingar um skipulag og hvenær í námsferlinu er tímabært að fara á samning.